Skipurit

Hagstofa Íslands vinnur hlutlægar hagskýrslur, hefur forystu um samhæfingu hagtalna, stundar rannsóknir og stuðlar þannig að upplýstri umræðu og faglegum ákvörðunum.

Hagstofan skiptist í fjögur svið, efnahagssvið, félagsmálasvið, fyrirtækjasvið og rekstrarsvið, auk skrifstofu yfirstjórnar og skrifstofu stjórnsýslu og samstarfs.

Hagstofunni stýrir hagstofustjóri. Gæða- og öryggismál heyra beint undir hann auk rannsóknadeildar, en hún hefur það að meginverkefni að gera þjóðhagsspár. Hagstofustjóri, sviðsstjórar og skrifstofustjóri stjórnsýslu og samstarfs mynda yfirstjórn Hagstofunnar.

Skipurit HagstofaREKSTRARSVIÐ Rekstur og fjármálUpplýsingatækni og miðlunGagnasöfnunEFNAHAGSSVIÐUtanríkisverslunVísitölurÞjóðhagsreikningarog opinber fjármálFÉLAGSMÁLASVIÐAtvinnu- og félagsmálLauna- og kjaramálMannfjöldi og manntalMennta- og menningarmálFYRIRTÆKJASVIÐFyrirtækjatölfræðiFyrirtækjaskrá tilhagskýrslugerðarAuðlinda- og umhverfismálSTJÓRNSÝSLA OG SAMSTARFStarfsmannahaldAlþjóðasamstarfAðferðirVísindasamstarfRANNSÓKNADEILDÞjóðhagsspáSKRIFSTOFA YFIRSTJÓRNARGæða- og öryggismálHAGSTOFUSTJÓRI

Stjórnsýsla og samstarf

Undir skrifstofuna heyra starfsmannamál, alþjóðasamstarf og -samskipti, aðferðafræði, umsýsla sérvinnslubeiðna, samstarf við aðra framleiðendur hagtalna, auk þess sem þjónusta við rannsóknarsamfélagið og umsýsla umsókna um aðgang að trúnaðargögnum heyrir undir skrifstofuna. Ólafur Arnar Þórðarson er skrifstofustjóri stjórnsýslu og samstarfs.

Efnahagssvið

Á efnahagssviði starfar utanríkisverslunardeild að söfnun og úrvinnslu gagna um þjónustuviðskipti og vöruviðskipti Íslendinga við útlönd. Vísitöludeild vinnur vísitölu neysluverðs, vísitölu byggingarkostnaðar, vísitölu framleiðsluverðs og skyldar verðvísitölur. Þá sér deildin um alþjóðlegan verðsamanburð (PPP) og frágang og útgáfu á niðurstöðum úr rannsókn á útgjöldum heimilanna. Deild um þjóðhagsreikninga og opinber fjármál vinnur að framleiðslu- og ráðstöfunaruppgjöri þjóðhagsreikninga, gerð ársfjórðungsreikninga fjármálareikninga og tekjuathugunum. Einnig vinnur deildin að gerð hagvísa og annast hagskýrslugerð um búskap hins opinbera og um tekjuskiptingu. Björn Rúnar Guðmundsson er sviðsstjóri efnahagssviðs.

Félagsmálasvið

Á félagsmálasviði starfa tvær deildir að félagsmálatölfræði. Atvinna, lífskjör og mannfjöldi vinnur að hagskýrslugerð um vinnuaflið, lífskjör, félagsvernd, heilbrigðismál, kosningar, stöðu kynja, lýðfræði og mannfjölda. Laun, tekjur og menntun annast hagskýrslugerð um tekjur, laun, launakostnað, menntun, skólamál, menningarmál og fjölmiðla. Hrafnhildur Arnkelsdóttir er sviðsstjóri félagsmálasviðs.

Fyrirtækjasvið

Á fyrirtækjasviði starfar deild um fyrirtækjatölfræði sem vinnur tölfræði um fyrirtæki og atvinnuvegi. Rekstur fyrirtækjaskrár til hagskýrslugerðar heyrir undir sviðið og er grundvöllur fyrir þá fyrirtækjatölfræði sem unnin er. Unnin er skammtímatölfræði um veltu og starfsmannafjölda eftir atvinnugreinum sem og árleg tölfræði um rekstur og afkomu atvinnugreina. Tölfræði um ferðaþjónustu, iðnaðarframleiðslu, sjávarútveg og landbúnað heyrir undir sviðið. Einnig heyrir tölfræði um rannsóknir og þróun í íslensku hagkerfi sem og tölfræði um nýsköpunarvirkni fyrirtækja undir sviðið. Böðvar Þórisson er sviðsstjóri fyrirtækjasviðs.

Rekstrarsvið

Rekstarsvið sér um rekstur, bókhald og fjármál auk þess að fást við miðlun, skiptiborð og upplýsingatækni sem tengist allri starfsemi Hagstofunnar. Tvær deildir heyra undir sviðið. Annars vegar er upplýsingatækni og miðlun sem annast rekstur og þjónustu vegna tölvukerfa. Deildin sér um hönnun, forritun og rekstur á sérsniðnum hugbúnaðarlausnum, þar með talið vef Hagstofunnar. Auk þess er miðlun, útgáfa, upplýsingaþjónusta og ritstjórn efnis á ytri og innri vef á verksviði deildarinnar. Hins vegar er deildin gagnasöfnun sem vinnur, eins og nafnið bendir til, að gerð úrtaksrannsókna og annarri gangnasöfnun, auk þess að sjá um afgreiðslu- og skiptiborð Hagstofunnar. Innan sviðsins er enn fremur unnið að ýmsum þróunar- og öryggismálum sem varða meðal annars hugbúnað og verklag. Elsa Björk Knútsdóttir er sviðsstjóri rekstrarsviðs.